Plebbi
06. desember 2007 klukkan 22:54
Ég er formlega orðin plebbi og komin með moggablogg. Maður verður nú að prufa eitthvað nýtt. Ætla samt að reyna að skrifa ekki bara ótrúlega gáfulegar og lærðar færslur og reyna að vera eitthvað skemmtilegt líka (ef ég hef þá verið það hér fyrir).
En kíkið á www.naglasupa.blog.is
En kíkið á www.naglasupa.blog.is
Niðurhal
28. nóvember 2007 klukkan 17:10
Þegar Torrent málið stóð sem hæst fékk ég tölvupóst sem bað mig um að senda Smáís bréf eða skrifa á undirskriftalista um að Smáís væru fífl afþví þeir lokuðu Torrent. Svakalega málefnalegt. Ég er reyndar ekkert rosalega hrifin af Smáís eftir að þeir kærðu nemendafélagið mitt. Ekki það að nemendafélagið braut mjög augljóslega lög þar sem það sýndi mjög ólöglegt eintak af mynd sem var ekki einu sinni komin í bíó og rukkuðu inn.
Annars held ég að niðurhal minnki sölu á bíómyndum og þáttum ekkert að ráði. Sumir ná í mynd á netinu, finnst hún og góð og fá þá áhuga á að kaupa hana. Það eru vissulega margir sem ná bara í dót á netinu og horfa á það í tölvunni og kaupa ekki en það sama fólk hefði sennilega ekki tímt að kaupa efnið hvort eð er.
Bara smá pæling
Nanna pælari

Netstafrófið
27. nóvember 2007 klukkan 10:41
Stal þessu af ónefndri blogg síðu. Maður slær bara hvern og einn staf í stafrófinu inn í browserinn og sér hvaða síða kemur fyrst upp. Ég er greinilega alltaf að gera eitthvað voða merkilegt á netinu.
alfheidurileiden.blogspot.com -Blogg hjá kærustu manns sem ég þekki ekki það mikið
blog.central.is/iste - Jamboree staffið
cmdr-sissa.livejournal.com -ægisbúi
Ekkert í d
elinhopkins.bloggar.is -frænka mín
facebook
gegnir
hi.is
icelandair
johannagisla.blogspot.com - var í jamboree staffinu
kaupþing
lækjarbrekka - er að fara á jólahlaðborð þar
myspace
naglasupa.bloggar.is -ég
ekkert í o
proquest -gagnasafn á netinu
ekkert í r
skati.is - skátafélagið mitt
thjodbrok.net - nemendafélagið mitt
ugla.hi.is - innranet háskólans
vinbud.is
Nanna netfíkill

Fegurðarsamkeppnir
23. nóvember 2007 klukkan 19:52
Í blöðunum í dag er búið að vera heilmikil umfjöllun um Herra Ísland sem ég var svo óheppin að missa af (eða eitthvað svoleiðis). Það sem ég hef séð skrifað um keppnina er um appelsínugula keppendur og að þeir hafi í raun verið að taka þátt í Ungfrú Ísland i karlaflokki. Einn penninn hjá blöðunum undraðist svo að þeir hefðu sjálfir þurft að bera sviðsmyndina inn á sviðið, hvort keppnin væri farin að njóta minni vinsælda og það væri verið að spara með þessu.
Ég hef horft á nokkrar fegurðarsamkeppnir og verð að segja að það er virkilega leiðinlegt sjónvarpsefni. Ég þekki eina unga stúlku (sem er reyndar 5 eða 6 árum eldri en ég) sem tók þátt í bæði Ungfrú Reykjavík og Ungfrú Ísland og varð því að horfa á útsendinguna frá þeim keppnum. Mæli ekki með því. Svo tók ein vinkona mín þátt í Ungfrú Vesturland og þá var ég dugleg og mætti í sal. Það voru þrír tímar af lífi mínu sem ég fæ ekki til baka. Milli þess sem stelpurnar komu fram í hinum og þessum fötum voru rosalega mis góð skemmtiatriði og tvö mjög löng hlé. Sessunautur minn skemmti sér hinsvegar mjög vel enda karlkyns og búin með eina sex bjóra (að andvirði cirka 3600 króna).
Mér finnast fegurðarsamkeppnir gjörsamlega tilgangslausar en það eru greinilega einhverjir sem að græða á að halda þær, ég efasta allavegana um að það sé svona mikil eftirspurn eftir þeim. Ég geng samt ekki svo langt að segja að þeir sem taki þátt í þeim séu heilalausir hálfvitar eins og einhver mannvitsbrekkan á barnalandi hélt fram.
Nanna kannski bara ljót og bitur
Ps. Eru ekki allir sem gangrýna fegurðarsamkeppnir ljótir og bitrir

Nóvember
19. nóvember 2007 klukkan 18:30
Ég var að fatta að nóvember er rúmlega hálfnaður. Það kom svolítið aftan að mér. Ég þurfti bara tvisvar í viku að fara á fætur meðan enn var dimmt úti og þarf ekki að gera það meira fram að jólum. Að vakna í myrkri og sjá hvað það tekur langan tíma að birta hefur töluverð áhrif á tímaskynið.
Ég er líka enn að bíða eftir að skólinn verði bara leiðinleg rútína sem gerðist áður í nóvember en bólar ekkert á þessa dagana. Það eru samt bara 2 vikur eftir af skólanum. Á þessum 2 vikum þarf ég bara að mæta fjórum sinnum í skólann. Svo eru 2 próf og þá er ég komin í mánaðar jólafrí. Nokkuð gott.
Ein af ástæðunum fyrir því að ég fattaði að svo langt væri liðið á nóvember er að Sylvía mín á afmæli í dag. Stúlkan er loksins orðin tvítug og hélt upp á daginn með því að fara til tannlæknis. Til hamingju gamla kona.
Nanna tímalausa

Helgin
11. nóvember 2007 klukkan 21:39
Um helgina var haldið upp á áttræðisafmælið hennar ömmu. Þar voru samankomin skyldmenni mín sem ég þekkti mis mikið og fullt af gömlu fólki sem ég hafði aldrei séð áður. Ein gömul skólasystir ömmu kallaði mig og 10 ára frænku mína lítil börn og dásamaði í hástert hversu sætar við værum. Hún sagði nokkurnveginn orðrétt ,, Nei, sjá litlu börnin, eru þau ekki sæt". Ég leit aftur fyrir mig til að athuga hvað litlu börnin væru að gera svona sætt, fattaði svo að hún var að tala um mig og Elfi. FJölskylduboð eru alltaf skemmtileg.
Þessa dagana er ég svo að bíða eftir því að ég fái taugaáfall og átti mig á hvað ég þarf að gera mörg verkefni á stuttum tíma. Mér dettur samt ekkert í hug að byrja á þessum verkefnum. Það er bara eitthvað við að skrifa 8-10 bls ritgerð um rússneskann fræðimann og kenninguna sem hann setti fram árið 1928 sem virkar ekki hvetjandi á mann.

Hérna er svo mynd af afmælisbarninu henni ömmu (hún á reyndar ekki afmæli fyrr en 13. en fyrst ég er að tala um afmælisbörn þá á systir mín afmæli í dag). Lárus frændi minn tók þessa mynd og ég stal henni af síðunni hans, vona að honum sé sama um það.
Nanna fegurðardís

Hundalíf
08. nóvember 2007 klukkan 23:21
Þegar ég vaknaði í morgun var pabbi að skera niður epli og setja út í hafragrautsskál. Pabbi og mamma eru sem sagt í afa og ömmu leik þessa dagana. Systir mín er í Amsterdam að halda upp á að hún sé að verða gömul og skildi hund og barn eftir hjá okkur. Litla prímadonnan getur ekki borðað hafragrautinn sinn án þess að í honum séu epli og kanill. Það var enginn svoleiðis lúxus þegar ég var lítil, en ég græddi á sérþörfunum og fékk eðal hafragraut.
Svo er voða vinalegt að hafa einhvern sem tekur á móti manni þegar maður kemur heim, þefar af manni og snuðrar um alla íbúðina. Beið bara eftir því að hann fyndi hassmola i sófanum, hann þefaði svo mikið af honum. Hundurinn er semsagt svartur labrador. Liturinn er eini gallinn. Það er ljós gólfdúkur á gólfunum og Skuggi skilur eftir sig þessa fallegu slóð af svörtum hárum. En þá er bara að vera duglegri að ryksuga.
Nanna barnapía

Vitleysingar
06. nóvember 2007 klukkan 21:47
Ég rakst á nokkuð áhugaverða síðu áðan. skapari.com
Þetta er síða sem rasistar á Íslandi halda úti. Þeir hafa vægast sagt róttækar hugmyndir og halda því fram að þeir ætli að fara að grípa til aðgerða.Hérna fyrir neðan eru boðorð, eða eitthvað álíka, þessa hóps. Spes hugsunarháttur, þeir dásama Ísland og Íslendinga en kunna ekki íslensku.
Sköpunarhreyfingin
er byggð á hinum Eilífu Lögum Náttúrunnar,
Sögu, Rökum og Almennri Skynsemi.
1. VIÐ TRÚUM að Kynþáttur okkar er okkar Trú.
2. VIÐ TRÚUM að Hvíta Kynið er Náttúrunnar Best.
3. VIÐ TRÚUM að Kynþáttatryggð sé efst af öllum heiðrum og Kynþáttasvik sé verst af öllum glæpum.
4. VIÐ TRÚUM að það sem er gott fyrir Hvíta Kynið er æðsta dyggðin og það sem er slæmt fyrir Hvíta Kynið er versta syndin.
5. VIÐ TRÚUM að sú EINA og SANNA, HREINA og BYLTINGARKENDA Hvíta Kyn Trú - SKÖPUN - er eina frelsunin fyrir Hvíta Kynið.
Til að efna þessa Trúar sannfæringu þá heitum við Skaparar að eilífu, okkar lífum, okkar heilaga heiðri og okkar trúar ákafa.
RAHOWA - ALGER HVÍTUR SIGUR !!!
Nanna, sem hélt að svona vitleysingar væru ekki til lengur

Vetur
29. október 2007 klukkan 16:14
Ég er í fríi þessa vikuna svo ég ætlaði nú að vera dugleg og fara og láta umfelga bílinn áður en allir færu að gera það og það yrði brjálað að gera á öllum dekkjaverkstæðum. En nei. Auðvitað fór að snjóa og frysta um helgina svo það er brjálað að gera á öllum dekkjaverkstæðum.... og ég á ónýtum dekkjum, ekki lélegum heldur ónýtum. Strætó verður þá bara að vera besti vinur minn næstu daga.
Dem, ég ætlaði líka að bóna bílinn fyrir veturinn... ég er glataður bíleigandi.
Nanna með frestunaráráttu